Jólin liðin...

Jamm, jólin eru liðin...tja amk þessir aðal dagar. Það verður að segjast eins og er að þetta voru ljúf jól. Pabbi og Erla komu þ. 20. des og við erum búin að hafa það virkilega fínt. Ég held að ég sé búinn að bæta á mig þó nokkuð af mör og ætli ég þurfi ekki megnið af janúar til að ná henni af.

kveðja,

Arnar Thor

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Innilega til hamingju með útskriftina, gleðilegt ár og takk fyrir allt það liðna (eins og sagt er). Gangi þér vel í atvinnuleitinni. Ertu ekkert á leiðinni heim?

Kv, Kolla
Arnar Thor sagði…
Hmm, veit ekkert hvað gerist, en Íslandið er mjög ólíklegt.

Takk fyrir kveðjuna Kolla,

Arnar Thor
Nafnlaus sagði…
Gleðilegt ár og takktakk fyrir þau gömlu, Rúnabrúna

Vinsælar færslur